… er sjálfstætt kvikmyndafyrirtæki með aðsetur á Íslandi. Fyrirtækið var stofnað af Einari Þór Gunnlaugssyni árið 1996 vegna framleiðslu "Leitarhunda", heimildarmynd sýnd í ríkissjónvarpinu 1997, en starfsemi þess lá að mesti niðri fram yfir aldamótaárið 2000. Fyrirtækið framleiddi "Þriðja Nafnið" árið 2002 til '03, leikin kvikmynd í anda bandarískra "indy" mynda eða "art house cinema", Heiðina frumsýnd 2008, heimildarmyndirnar Norð Vestur I og II 2010 til 2011, Mirgorod 2018 og Ljósmál 2019. Yfirbygging fyrirtækisins er lítil en það hefur yfir eigin klippiaðstöðu að ráða og samstarfaðilar þess eru frá litlum sjálfstætt starfandi verktökum til alþjóðlegra fyrirtækja.
Passport sinnir einnig þjónustu við gerð kennslu- og kynningarmynda fyrir fyrirtæki á Íslandi ásamt ráðgjöf á sviði menntunar í kvikmyndagerð og skapandi skrifa fyrir myndmiðla. Fyrirtækið leggur áherslu á að verkefni þess séu fersk, raunhæf í framleiðslu og eigi erindi við áhorfendur.